12.2.2010 | 01:41
Að búa til glæpamenn
Aðgerðum lögreglunnar við Tækniskólann í dag var af fjölmiðlum lýst sem forvörnum til að sporna við "fíkniefnadjöflinum". Um hina gildishlöðnu orðræðu er óþarfi að fjalla nánar - og öll erum við sammála um að fíkniefnaneysla sé vandamál. En hvernig vandamál er hún eiginlega og hvernig er best að takast á við það?
Í dag þykir fólki eðlilegt að lögregla loki án fyrirvara skóla þar sem er fjöldinn allur af sjálfráða einstaklingum og neiti að hleypa þeim út nema að láta fíkniefnahunda þefa af því. Þessi frelsissvipting er réttlætt með því að hún hafi forvarnargildi og sé partur af þeirri óraunsæu útópíu að samfélagið geti, og eigi, að vera algerlega laust við fíkniefni. En þetta viðhorf er ekkert nema sturlun. Hún elur á ótta, áróðri og sumpartinn röngum upplýsingum sem stjórnvöld, SÁÁ og lögregla gefa okkur. Í kjölfarið eru venjulegir nemendur gerðir að grunuðum glæpamönnum. Hér er verið að búa til hugsanlega glæpamenn vegna neyslu þeirra á efnum sem ættu að flokkast undir heilbrigðisvandamál.
Hið heilaga stríð sem stjórnvöld heyja við þegna sína er fyrir löngu tapað. Á þeim áratugum sem það hefur staðið yfir hefur framboð á fíkniefnum margfaldast, aðgengi þeirra aukist til muna og verðið nær staðið í stað (þrátt fyrir verðbólgu, kreppur, hrun og fleira). Lögregla og stjórnvöld hafa lítið sem ekkert getað spornað við þessari þróun. Það sést kannski best á því að ekki fundust vímuefni á neinum nemanda þrátt fyrir að um hundrað lögreglumenn hafi girt af menntastofnun og leitað á orwellískan hátt á öllum sem þar voru.
Hvað hefði gerst ef gras eða kókaín hefði fundist á nokkrum nemendum? Þeir væru lítillækkaðir fyrir framan alla, farið með þá eins og glæpamenn og fengið meðferð sem er út í hött fyrir venjulega manneskju sem hefur e.t.v. stjórn á neysluvenjum sínum. Þeir eru "de-humanized", gerðir að einhverju óæðra í augum samfélagsins, annars stigs þegna sem má fara með að vild eingöngu vegna þess að þeir neyta ákveðinna efna. Á þann hátt hefur baráttan gegn fíkniefnunum hefur alltaf verið barátta stjórnvalda gegn fólkinu sem neytir þeirra, hvort sem það hefur tekið upplýsta ákvörðun um það eða ekki.
Það sem þau skilja ekki er að fíkniefnaneysla er eingöngu heilbrigðisvandamál - alger óþarfi er að blanda lögreglu inn í það! Sú staðreynd að fíkniefni eru ólögleg hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér, svartan innheimtumarkað, fíkla sem þora ekki að leita sér hjálpar sakir þess að vera stimplaðir glæpamenn, félagslega útskúfun og svo framvegis. Sú staðreynd að fíkniefnaverslun er svo oft tengd mansali er eingöngu sú að hvort tveggja er ólöglegt.
Verði fíkniefnaneysla gerð lögleg er það þó alls ekki samasemmerki þess að hún ætti að vera æskileg. Viðhorf samfélagsins til þeirra ætti að vera hið sama og til tóbaks og áfengis, m.t.t. þess hversu sterk efnin að sjálfsögðu eru. Aðeins þá verður hægt að takast á vandanum og minnka eftirspurn til þeirra með ströngu eftirliti sem yrði tengt meðferðarúrræðum - þá minnkar framboðið sömuleiðis. Sú aðferð að búa til glæpamenn úr venjulegu fólki gagnast ekki neinum nema þeim sem vilja hafa stjórn á því.

|
Fíkniefnaleit í Tækniskólanum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Kristján Hrannar Pálsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 6018
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

apalsson
dansige
hildigunnurr
svanurmd
vefritid
Athugasemdir
Mér finnst þetta alger fasismi og efast stórlega um að þetta standist nokkur lög. Svipað gerðu þeir á bifröst, en þar var það víkingasveitin, sem kom með hurðarkarminn á herðunum inn á heimavist til að leita að einhverjum hassmolum. Hvað í ósköpunum er í gangi? Ég er stein hissa á að ekki skuli vera gert meira veður út af þessu. Þetta er að verða eins og í ráðstjórnarríkjunum gömlu hérna. Stazi með rassíur án tilefnis og árangur út um allt til að ógna og ergja. Það yrði sagt eitthvað ef þeir tækju stóra vinnustaði svona fyrir. Hvert er tilefnið? Ég fæ ekki með nokkru móti skilið þennan fasisma.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.2.2010 kl. 05:40
Þessi frétt vekur einhver ónot og spurningar um það, sem framundan kann að vera. Var þó ekki örugglega leitað á kennarastofunni líka ?
Er svo ekki alveg viss um "forvarnargildi" þess að "krímínalísera" heilan skóla...að því er virðist að tilefnislausu.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 12.2.2010 kl. 08:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.